
Ég heiti Rúnar Sigurðsson. Ég er útskrifaður margmiðlunarfræðingur. Ég er með tvöfalt leyfisbréf sem kennari, bæði á grunn- og framhaldsskólastigi, en ég bætti kennslufræði við nám mitt og lauk henni 2008. Til viðbótar lærði ég forritun hjá NTV og sótti námskeið í uppsetningum og þjónustu við notendur á tölvum.
Ég hef starfað við gerð gagnvirks kennsluefnis, útbúið kennsluefni fyrir leikskólakennara sem snýr að vefumsjónarkerfi og haldið stutt námskeið því tengdu. Einnig hef ég sinnt starfi vefstjóra fyrir eitt stærsta sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu og hef því mikla reynslu af samskiptum og þjónustu. Ég nota opinn hugbúnað og hef sett upp yfir hundrað heimasíður í Joomla. Ég hef mikla reynslu af Apache vefþjónum og kynnt mér öryggi þeirra. Ég hef sótt ráðstefnu um opna stjórnsýslu í Finnlandi en í flestum löndum Evrópu er stefnan að draga úr kostnaði í tölvugeiranum með opnum hugbúnaði. Ég tel nauðsynlegt að leita ráða áður en slíkur hugbúnaður er valinn.

